Um Vit

Um Vit

Tækniyfirfærsla og nýsköpun á sviði tal- og máltruflana og talmeinafræði krefst þess að byggðar séu nýjar þverfaglegar brýr. Við þurfum talmeinafræðinga sem skilja tæknina og forritara sem skilja talmeinafræðinga. Hjá Viti byggjum við slíkar brýr og gerum það á grunni djúprar þekkingar á tungumálum og margbreytileika þeirra.

Við vitum að tal og mál eru sérstaklega rík uppspretta gagna. Það skiptir ekki bara máli hvað við segjum heldur líka hvernig við segjum það. Þetta er eitthvað sem við upplifum öll þegar við nýtum hárfín merki og vísbendingar í röddum sem við þekkjum vel. Stundum þarf bara örfáar sekúndur í símtali til að átta sig á því hvort viðmælandi okkar er þreyttur, kvefaður eða jafnvel skælbrosandi.

Sem talmeinafræðingar vitum við að tal og mál innihalda auk þess mikilvægar vísbendingar um þroskaraskanir á borð við DLD og tal- og máltruflanir vegna t.d. heilabilunar, sjúkdóma á borð við Parkinson og MND og málstols í kjölfar heilablóðfalls. Sem sérfræðingar í máltækni kunnum við að byggja þau tól sem geta fangað þessi merki sjálfvirkt. Bakgrunnur okkar liggur m.a. í fræðilegum rannsóknum en þar höfum við sérstaklega skoðað hvernig þessar vísbendingar í tali og máli geta verið ólíkar eftir tungumálum og einstaklingum. Þetta höfum við t.d. gert í samstarfi við lyfjafyrirtæki til að umbreyta rannsóknarniðurstöðum í áreiðanlega endapunkta sem mæla árangur meðferðar.

Okkar markmið er að beisla upplýsingastrauminn sem flæðir úr tali og máli út frá traustri málvísindalegri þekkingu. Nýting á tali og máli sem stafræn lífmerki um raskanir og sjúkdóma þarf að taka mið af marbreytileika tungumála og sívaxandi fjöltyngi. Við nýtum bakgrunn okkar í málvísindum, máltækni og talmeinafræði til að tryggja að tækniframfarir nýtist þeim sem þurfa mest á þeim að halda. Við erum stolt af því að vera fyrsta sprotafyrirtæki Háskóla Íslands sem sprettur upp á Hugvísindasviði.

Teymi

Teymi

Iris Edda Nowenstein

Iris Edda Nowenstein

Framkvæmdastjóri

Bryndís Bergþórsdottir

Bryndís Bergþórsdottir

Vöruþróunarstjóri

Gunnar Thor Örnólfsson

Gunnar Thor Örnólfsson

Tæknistjóri

Hinrik Hafsteinsson

Hinrik Hafsteinsson

Rannsóknarstjóri