ALDA
ALDA
ALDA
Málsýnagreining er eitt nákvæmasta greiningartæki talmeinafræðingsins en er notuð takmarkað í daglegu starfi vegna þess hve langan tíma það tekur að vinna málsýni í höndunum. ALDA breytir þessu með því að nýta máltæknilausnir til að greina málsýni á sjálfvirkan hátt og skila lykilmælingum á nokkrum sekúndum í stað klukkustunda. Með þörf fyrir tækniyfirfærslu í huga hönnuðum við lausnina sem við vildum sjálf nota í starfi.
ALDA er notendavæn og örugg veflausn sem nýtir máltækni til að breyta upptökum af tali í texta, sækja upplýsingar úr hljóðupptökum og textaafritum og setja þær fram á skýran hátt. Lausnin nýtist í skimun, greiningu og langtímaeftirfylgd. Í ÖLDU má finna innbyggð verkefni og kveikjur fyrir málsýnatöku. Talmeinafræðingar taka upp eða hlaða inn málsýnum, yfirfara sjálfvirka afritun og nálgast samstundis töluleg gildi. Við mælum til dæmis fjölbreytileika orðaforða, flækjustig setninga, dreifingu orðflokka og hik í tali og margt fleira.
ALDA getur líka haldið utan um niðurstöður staðlaðra prófa og matslista. Til verður heildstætt yfirlit yfir færni skjólstæðingsins sem auðveldar eftirfylgd og mat á meðferðarárangri til lengri tíma.